10 júlí 2024Mál nr. 197/2024-ÚrskurðurViðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hann mætti ekki á boðaðan fund hjá stofnuninni.
10 júlí 2024Mál nr. 225/2024-ÚrskurðurFramlenging lífeyrisgreiðslna. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn um framlengingu lífeyrisgreiðslna þrátt fyrir dvöl á sjúkrastofnun. Kærandi uppfyllti ekki skilyrði framlengingar lífeyrisgreiðslna þar sem að hún var talin fær um að greiða afborganir og rekstrarkostnað vegna íbúðarinnar.
10 júlí 2024Mál nr. 221/2024-ÚrskurðurÖrorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri. Ekki talið að endurhæfing hafi verið fullreynd.
10 júlí 2024Mál nr. 209/2024-ÚrskurðurÖrorkumat. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til mats á örorku. Að mati úrskurðarnefndar er endurhæfing ekki raunhæf að sinni.
10 júlí 2024Mál nr. 228/2024-ÚrskurðurViðurlög. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hún mætti ekki á boðaðan kynningarfund hjá stofnuninni.
10 júlí 2024Mál nr. 146/2024-ÚrskurðurUppbót á lífeyri. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn kæranda um uppbót á lífeyri. Tekjur kæranda voru umfram þau tekjumörk sem tilgreind eru í 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2018 um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri. Ekki fallist á að ákvörðun Tryggingastofnunar brjóti í bága við jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
10 júlí 2024Mál nr. 123/2024 Úrskurður Ellilífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um búsetuhlutfall kæranda vegna greiðslu ellilífeyris.
10 júlí 2024Úrskurður nr. 747/2024Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, ásamt brottvísun og endurkomubanni, er staðfest.
10 júlí 2024Mál nr. 179/2024-ÚrskurðurViðurlög. Ofgreiddar bætur. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði vegna ótilkynntra tekna. Einnig staðfest ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra bóta þar sem kærandi var með opna launagreiðendaskrá. Endurkrafa fyrir einn mánuð þó felld úr gildi og þeim hluta málsins vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.
10 júlí 2024Traust til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla almennt gottTraust mælist hátt til opinberrar stjórnsýslu og fjölmiðla á Íslandi í samanburði við önnur OECD-ríki. Félagslegt traust mælist jafnframt hátt hér á landi og fer vaxandi á milli mælinga.
10 júlí 2024Mál nr. 196/2024-ÚrskurðurViðurlög. Ítrekunaráhrif. Staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði þar sem hann mætti ekki á boðað námskeið. Einnig staðfest ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hann mætti ekki á boðað námskeið.