19 apríl 2024
Stuðningur við Úkraínu efst á dagskrá á fundi með varautanríkisráðherra Bandaríkjanna
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hitti í dag Kurt Campbell, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Tvíhliða samstarf Íslands og Bandaríkjanna, stuðningur við Úkraínu og málefni Miðausturlanda bar hæst á fundinum, sem og málefni norðurslóða og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins sem haldinn verður í Washington í sumar.…