10 janúar 2013
Stefnumörkun um skógrækt afhent ráðherra
<p>Starfshópur, undir formennsku Jóns Loftssonar skógræktarstjóra, sem unnið hefur að gerð stefnumótunar í skógrækt hefur skilað tillögum sínum til Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra. Nefndin, sem var skipuð árið 2006, hefur unnið greinargerð með stefnumarkandi tillögum um áherslur í skógræktarstarfinu sem hún kynnti ráðherra í gær.</p>