02 maí 2025
Fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði
Fyrsta skóflustunga var í dag tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Birna Sif Atladóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási, og Grétar Aðalsteinsson, heimilismaður í Ási, tóku skóflustungu að nýja heimilinu sem mun rúma 44 manns. Í dag eru heimilismenn í Ási 111 talsins en verða 138 þegar nýja hjúkrunarheimilið verður tekið í notkun.…