16 mars 2026
Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri í Garðabæ
Ráðgert er að reisa nýtt hjúkrunarheimili með 100 hjúkrunarrýmum við Vetrarmýri í Garðabæ. Inga Sæland, sem fer með uppbyggingu hjúkrunarheimila, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag. Gert er ráð fyrir að byggingin verði ríflega 8.300 m2 og að hjúkrunarheimilið verði á efri hæðum hennar. Á jarðhæðinni er gert ráð fyrir þjónustumiðstöð.