14 apríl 2026
Ný gátt til að tilkynna netglæpi
Dómsmálaráðherra opnaði í dag nýja stafræna tilkynningagátt og fræðslusvæði um netglæpi á vef lögreglu. Með gáttinni er almenningi, fyrirtækjum og stofnunum gert kleift að tilkynna netglæpi á einfaldan, öruggan og aðgengilegan hátt. Á fræðslusvæðinu má svo nálgast upplýsingar um hvað ber að varast og hvernig hægt er að verja sig fyrir slíkum glæpum.