19 júlí 2019
Ráðherra ráðstafar 31 þúsund tonnum til sérstakra aðgerða
Um árlega úthlutun er að ræða sem byggir á lögum um stjórn fiskveiða en samkvæmt þeim er 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund dregið af leyfilegum heildarafla til að mæta áföllum, til stuðnings byggðalögum, línuívilnunar, strandveiða, rækju- og skelbóta, frístundaveiðar og til annarra tímabundinna ráðstafana til að auka byggðafestu.