29 janúar 2025
Tillögur að uppbyggingu á fæðingarstað Jónasar Hallgrímssonar
Verkefnisstjórn, sem skipuð var í nóvember 2023, hefur skilað af sér tillögum um uppbyggingu að Hrauni í Öxnadal, fæðingarstað Jónasar Hallgrímssonar. Tillögurnar ganga út á metnaðarfulla uppbyggingu á staðnum þar sem aðgengi að fólkvangi og náttúru staðarins er tryggt og gert ráð fyrir nýstárlegri menningarmiðlun, m.a. um framlag Jónasar til íslenskrar menningar.