21 mars 2024
Mælti fyrir frumvarpi sem felur í sér mestu breytingar á örorkulífeyriskerfinu frá upphafi
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mælti nú rétt í þessu fyrir frumvarpi á Alþingi vegna endurskoðunar á örorkulífeyriskerfinu. Frumvarpið felur í sér mestu breytingar á örorkulífeyriskerfinu frá upphafi. Breytingarnar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi.