19 febrúar 2025
Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum
Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til þess að efla samskipti milli Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt. . Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum vegna þessa tímabils rennur út 31. mars 2025.