25 nóvember 2025
Jarðhiti jafnar leikinn: 600 milljónir í nýsköpun og tækniþróun
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að ráðstafa 600 milljónum króna í styrki til nýsköpunar og tækniþróunar á sviði jarðhita. Fjárveitingin er liður í átakinu Jarðhiti jafnar leikinn og kemur til viðbótar þeim milljarði króna sem þegar hefur verið úthlutað vegna leitar og nýtingar jarðhita um allt land.