05 september 2025
Forvörn gegn RS veiru tekin í almenna notkun fyrir ungbörn í fyrsta sinn á Íslandi
Öllum ungbörnum undir sex mánaða aldri verður boðin forvörn gegn RS veirusýkingu frá og með október næstkomandi. Þetta er nýmæli. RS-veiran er algeng orsök öndunarfærasýkinga, sem leggst sérstaklega þungt á börn á fyrsta aldursári, og veldur árlega fjölda innlagna á sjúkrahús hérlendis og erlendis. Í alvarlegum tilvikum þurfa börn að leggjast inn á gjörgæslu og fá öndunarvélarstuðning.…