23 september 2025
Mælti fyrir þremur frumvörpum á Alþingi
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í gær fyrir samtals þremur frumvörpum á Alþingi. „Við í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu förum af fullum krafti inn í þingveturinn. Við erum með fjölmörg frumvörp á þingmálaskránni og málin okkar hafa þýðingu fyrir fólk um land allt,“ segir ráðherra.