26 mars 2025Mál nr. 39/2025-ÚrskurðurEndurhæfingarlífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma endurhæfingarlífeyris kæranda. Kærandi uppfyllti ekki skilyrði fyrir greiðslum endurhæfingarlífeyris fyrr en frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að endurhæfing hófst, sbr. 1. mgr. 7. gr. laga um félagslega aðstoð og 32. gr. laga um almannatryggingar.
26 mars 2025Nr. 262/2025 ÚrskurðurÁkvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er staðfest.
26 mars 2025Mál nr. 17/2025-ÚrskurðurUppbót vegna reksturs bifreiðar. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma greiðslna uppbótar vegna reksturs bifreiðar. Að mati úrskurðarnefndar lágu fyrir nægjanlegar upplýsingar til þess að fallast á greiðslur tvö ár aftur í tímann í nóvember 2024. Upphafstími var því ákvarðaður 1. desember 2022.
26 mars 2025Úrskurður nr. 269/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, ásamt brottvísun og endurkomubanni, er staðfest.
26 mars 2025Nr. 259/2025 ÚrskurðurStjórnsýslukæru vegna ákvörðunar lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, er vísað frá.
26 mars 2025Nr. 161/2025 ÚrskurðurÁkvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli h-liðar 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi.
26 mars 2025Nr. 160/2025 ÚrskurðurÁkvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli c-, og d-liða 1. mgr. 94. gr. laga um útlendinga, er felld úr gildi.
26 mars 2025Rætt um nýtingu jarðhita í SlóvakíuJóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra átti í gær fund með Denisa Saková, efnahagsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu, þar sem rædd voru orkumál og nýting jarðhita í Slóvakíu.
25 mars 2025Endurskoðar lög og framkvæmd á nálgunarbanni til að tryggja rétt þolendaÞorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að yfirfara gildandi lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili, sem og framkvæmd þess og leggja til breytingar í samræmi við þá yfirferð. Jafnframt verði tekið til skoðunar hvort og þá með hvaða hætti hægt er að nýta ökklabönd til að auka öryggi brotaþola.
25 mars 2025Jarðhiti jafnar leikinn – opnað fyrir styrkumsóknirOpnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki vegna átaksins Jarðhiti jafnar leikinn, sem Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti nýlega.
25 mars 2025Bólusetning boðin gegn RS veiru fyrir yngstu börninAlma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur heimilað sóttvarnalækni að ganga til kaupa á mótefni við RS-veiru (Beyfortus) til tveggja ára. Bólusetning með efninu verður boðin fyrir 4.500 ungbörn næsta vetur og einnig 2026-2027. RS-veiran er algeng öndunarfæraveira sem gengur í stórum faröldrum yfir vetrartímann og leggst einkum þungt á börn á fyrsta aldursári.
25 mars 2025Úrskurður nr. 263/2025Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, ásamt brottvísun og endurkomubanni, er staðfest.