04 febrúar 2025
Frumvörp sem snerta fjölda fólks
Ellefu frumvörp á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar koma frá Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. Frumvörpin spanna vítt svið og snerta fjölda fólks. Má þar nefna fatlað fólk, örorkulífeyrisþega, ellilífeyrisþega, fólk á leigumarkaði, fólk sem eignast fjölbura, fólk sem tekur hlutdeildarlán til fyrstu íbúðarkaupa og börn sem missa foreldri.