22 nóvember 2010
Utanríkisráðherra stýrði fundi EES-ráðsins
<p>Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, stýrði í dag fundi EES-ráðsins, sem haldinn var í Brussel, en utanríkisráðherra hefur verið formaður ráðsins. Á vettvangi ráðsins eiga fulltrúar EFTA-ríkjanna, sem eiga aðild að EES-samningnum, auk fulltrúa framkvæmdastjórnar, ráðherraráðs og forysturíkis ESB, reglulegt samráð um framvindu EES-samningsins.<br>
</p>