04 júní 2014
Íslensk kvikmyndahátíð og ljósmyndir Ragnars Axelssonar í Nuuk
Íslensk kvikmyndahátíð var haldin í Nuuk dagana 24. og 25. maí í samstarfi aðalræðisskrifstofu Íslands, Katuaq menningarmiðstöðvarinnar í Nuuk og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Á hátíðinni voru sýndar myndirnar Andlit norðursins, Hross í oss, Eldfjall, Djúpið, Svartur á leik og Hetjur Valhallar, Þór.