25 nóvember 2015
Spáð að farþegum um Keflavíkurflugvöll
fjölgi úr 4,9 milljónum 2015 í 6,2 2016
<p>Isavia kynnti í dag spá um fjölda farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll á næsta ári og er þar gert ráð fyrir að þeir verði rúmlega 6,2 milljónir. Í ár er búist við um 4,9 milljónum farþega og er aukningin yfir 28%. Næsta sumar munu 25 flugfélög bjóða flug frá Keflavíkurflugvelli til 80 áfangastaða. Farþegaspáin nær til þeirra sem koma til landsins, þeirra sem fara og til skiptifarþega, þ.e.…