23 október 2024
Fjölbreytt menningardagskrá til heiðurs Íslandi í Paimpol
Í tilefni 20 ára afmæli vinabæjasamstarfs Paimpol og Grundarfjarðar var slegið til hátíðar í bænum. Íslenskum fánum var flaggað víða um bæinn. Fjörutíu manna sendinefnd frá Grundarfirði undir forystu Bjargar Ágústsdóttur, bæjarstjóra Grundarfjarðar, tók þátt í dagskránni.