15 apríl 2026
Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar
Forsætisráðuneytið býður til samtals um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar mánudaginn 20. apríl nk. á Hilton Nordica. Fundurinn, sem er öllum opinn, hefst kl. 8.30 en boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8. Gert er ráð fyrir að fundinum ljúki kl. 10.