03 mars 2025
Samráðsgátt: Frumvarp sem ætlað er að bæta stöðu örorku- og ellilífeyrisþega
Drög að frumvarpi sem ætlað er að bæta stöðu örorku- og ellilífeyrisþega er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir meðal annars að ríkisstjórnin ætli að stöðva strax kjaragliðnun launa og lífeyris og stíga stór skref til að uppræta fátækt, auk þess að binda í lög að aldursviðbót á lífeyri öryrkja haldist ævilangt.