08 maí 2026
Landssamtökin Þroskahjálp fá 25 milljóna króna styrk
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, hafa undirritað samning um 25 milljóna króna styrk til Þroskahjálpar. Landssamtökin Þroskahjálp eru hagsmunasamtök fatlaðs fólks og leggja sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir, fötluð börn og fatlað fólk sem býr við margfalda jaðarsetningu.