06 september 2024
Heimsókn forseta Íslands og félagsmálaráðherra til Parísar í tengslum við Ólympíumót fatlaðra
Forsetahjónin, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, komu til Parísar til að vera viðstödd setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra og til að hvetja íslenska íþróttafólkið áfram. Þau sóttu móttöku í boði forseta Frakklands og voru heiðursgestir í móttöku á vegum Össurar sem haldin var í samstarfi við sendiráðið til heiðurs íslensku keppendunum og íþróttafólki úr Team Össur.