07 febrúar 2023
Í átt að kolefnishlutleysi Vopnafjarðarhrepps
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu sem kveður á um að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Vopnafjarðarhreppur og Brim hf. hrindi í framkvæmd aðgerðum til að stuðla að kolefnishlutleysi í sveitarfélaginu.