05 júní 2015
Sameining skógræktarstarfs ríkisins í athugun
<p>Umhverfis og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, hefur skipað starfshóp til að skoða sameiningu skógræktarstarfs ríkisins í eina stofnun. Um er að ræða Skógrækt ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt, sem eru Vesturlandsskógar, Skjólskógar á Vestfjörðum, Norðurlandsskógar, Héraðs- og Austurlandsskógar og Suðurlandsskógar, auk umsjónar Hekluskógaverkefnisins.  </p>