25 september 2024
Drög að stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur lagt fram til samráðs stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hyggst leggja fram sem tillögu til þingsályktunar á haustþingi. Stefnan er til fimmtán ára og var áður birt í hvítbók en framkvæmdaáætlunin er til fjögurra ára.