20 ágúst 2026
Varnaræfingunni Norður-Víkingur hleypt af stokkunum
Varnaræfingunni Norður-Víkingur var formlega hleypt af stokkunum á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í vikunni að viðstöddum fjölmörgum innlendum og erlendum gestum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Alexus Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins, sem jafnframt er yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, fluttu ávörp á opnunarathöfninni.