20 apríl 2026
Mælti fyrir frumvarpi um rannsókn alvarlegra atvika í velferðarþjónustu
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV). Breytingin snýst um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika og er markmið frumvarpsins að styrkja rannsóknir, tilkynningarskyldu og skráningu slíkra atvika í velferðarþjónustu.