20 desember 2024
Ríkisrekstur bættur með nýtingu gervigreindar
Norræna embættismannanefndin um atvinnustefnu hefur veitt samstarfsverkefni Fjársýslu ríkisins og DataLab, íslensks sprotafyrirtækis, styrk að upphæð 24,2 m.kr. til verkefnis sem miðar að því að búa til gervigreindarlausn sem nýta megi í opinberum rekstri til að spá betur fyrir um afkomu og greina hugsanleg frávik frá rekstraráætlunum ríkisstofnana.