27 ágúst 2026
Reglugerð um símafrí í grunnskólum sett – skýr rammi um námsfrið og vellíðan
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Með reglugerðinni eru í fyrsta sinn settar samræmdar reglur um símafrí í grunnskólum landsins. Markmiðið er að skapa aukinn námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag.