17 maí 2024
Tvíhliða samstarf Íslands og Þýskalands til umræðu á fundum ráðuneytisstjóra
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Martin Eyjólfsson, átti pólitískt samráð í vikunni með kollegum sínum í utanríkis-, varnarmála- og þróunarsamvinnuráðuneytum Þýskalands. Fundað var með ráðuneytisstjórum sem fara með mannréttindi og fríverslun, alþjóða- og öryggispólitík, varnarpólitík og alþjóðlega þróunarsamvinnu, auk þess sem fundað var með Evrópumálaráðherra Þýskalands.…