22 apríl 2024
Öll með: Fjöldi fólks fylgdist með kynningu á fyrirhuguðum breytingum á örorkulífeyriskerfinu
Fjöldi fólks fylgdist með kynningarfundi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Yfirskrift fundarins var „Öll með“ og var fundurinn sendur út í beinu streymi fyrr í dag. Markmið breytinganna er að einfalda örorkulífeyriskerfið, draga úr tekjutengingum og gera kerfið réttlátara.