23 febrúar 2015
Rafræn viðskipti rædd á aðalfundi ICEPRO þriðjudaginn 24. febrúar
Aðalfundur ICEPRO 2015 verður haldinn á Snæfelli, Hótel Sögu þriðjudaginn 24. febrúar kl. 12. ICEPRO er samstarfsvettvangur um rafræn viðskipti. Þar sitja við sama borð opinberir aðilar, fyrirtæki og aðilar úr upplýsingatæknigeiranum og miðla af reynslu, setja stefnu, skilgreina ferli og sannreyna tækni.