23 apríl 2025
1300 milljónir í styrki vegna orkuskipta og tækni- og nýsköpunarverkefna á sviði loftslagsmála
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að auglýstir verði styrkir að upphæð 1.300 milljóna króna til almennra verkefna sem eru til þess fallin að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og gera Ísland óháðara jarðefnaeldsneyti.