06 mars 2025
Styrkir veittir til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna á sviði félags- og velferðarmála
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti í dag styrki til verkefna á sviði félags- og velferðarmála. Veittir voru 17 styrkir til reksturs og fjölbreyttra verkefna sem varða meðal annars málefni eldri borgara, málefni fatlaðs fólks, fátækt og félagslega einangrun. Auglýst var eftir umsóknum um styrki og var bæði hægt að sækja um verkefnastyrki og rekstrarstyrki.