11 apríl 2012
Opinn fundur
um Ríó+20 ráðstefnuna um sjálfbæra þróun
<p>Mánudaginn 16.04.12 er boðað til opins fundar um Ríó+20, stóra ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem fram fer í Ríó de Janeiro í júní. Að fundinum standa utanríkisráðuneyti, umhverfisráðuneyti, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir, Alþjóðamálastofnun og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.</p>