04 apríl 2025
Kynningarfundur um niðurstöður rannsóknar á högum og líðan eldra fólks
Félagsvísindastofnun hefur að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins unnið greiningu á högum og líðan eldra fólks hér á landi. Helgi Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun, kynnir niðurstöður greiningarinnar á rafrænum fundi fimmtudaginn 10. apríl kl. 12:00-13:00.