27 desember 2017Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
713/2017. Úrskurður frá 13. desember 2017
Isavia ohf. krafðist frestunar réttaráhrifa úrskurðar úrskurðarnefndarinnar nr. 709/2017 á meðan mál yrði borið undir dómstóla með vísan til 24. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin fór yfir röksemdir Isavia fyrir kröfunni og komst að þeirri niðurstöðu að skilyrði ákvæðisins væru ekki uppfyllt. Kröfunni var því hafnað.