18 febrúar 2020Úrskurðir ferðaþjónusta, Stjórnsýslukærur - úrskurðir
Endurupptökubeiðni - Tímabundin svipting rekstrarleyfis – Rekstrarleyfi í flokki III
Með bréfi dags. 15. júlí 2019 barst ráðuneytinu endurupptökubeiðni frá [X], lögmanni, fyrir hönd [Z ehf.] (hér eftir kærandi). Beiðnin snýr að ákvörðun ráðuneytisins dags. 12. júlí 2019, þar sem staðfest var ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir sýslumaður) dags. 13. maí 2019, um að svipta kæranda tímabundið leyfi til reksturs veitingastaðar í fl. III að [Þ].