23 maí 2014Kærunefnd útboðsmála
Mál nr. 8/2014. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
<p align="justify">Með kæru 8. maí 2014 kærir Óskatak ehf. útboð Vegagerðarinnar auðkennt „Svínadalsvegur (502-02) Leirársveitarvegur – Kambshóll“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda, en til vara að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Auk þess er krafist málskostnaðar.</p>