26 apríl 2019Kærunefnd útlendingamála
Nr. 189/2019 - Úrskurður
Beiðni kæranda um endurupptöku er samþykkt. Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísa henni frá landinu er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.