24 mars 2026Stjórnsýslukærur - úrskurðir
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins nr. 7/2026 vegna ákvörðunar Skattsins um að leggja dráttarvexti á virðisaukaskatt
Ráðuneytinu barst kæra í málinu þann 14. mars 2025, en kærandi er A ehf., kt. […]. Kærð er ákvörðun Skattsins, dags. 16. desember 2024, um að leggja dráttarvexti á virðisaukaskatt fyrir uppgjörstímabilin janúar-febrúar 2018 til og með júlí-ágúst 2023 vegna virðisaukaskattsnúmera X og Y.