03 september 2015Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 26/2015
Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði með vísan til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hafði ekki tilkynnt um lífeyrissjóðstekjur, var staðfest. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar bætur skv. 39. gr. laganna.