24 júní 2020Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Mál nr. 90/2020 - Úrskurður
Greiðsluþátttaka. Ferðakostnaður. Felld úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn um þátttöku í ferðakostnaði innanlands. Að mati úrskurðarnefndar voru skilyrði fyrir greiðsluþátttöku uppfyllt í tilviki kæranda þar sem um væri að ræða alvarlegan sjúkdóm í skilningi 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 871/2004.