10 maí 2023Kærunefnd útlendingamála
Nr. 267/2023 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 62. gr. laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 51. gr. laganna, er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar.