27 nóvember 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis
Úrskurður nr. 26/2020
Heilbrigðisráðuneytið ákvað með vísan til erindis umboðsmanns Alþingis, dags. 2. október 2018, um kvörtun vegna synjunar ráðuneytisins, dags. 10. júlí 2018, á umsókn A á Íslandi um löggildingu sem heilbrigðisstétt, að endurupptaka mál félagsins. Ráðuneytið sendi Umboðsmanni Alþingis bréf, dags. 31. október 2018, þar sem ráðuneytið tilkynnti um ákvörðun sína.