16 apríl 2013Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
Mál nr. 37/2012
Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda í tvo mánuði með vísan til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, var ómerkt og málinu vísað aftur til Vinnumálstofnunar til löglegrar meðferðar, þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið reist á röngum lagagrundvelli.