28 september 2015Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018
Kæra vegna málsmeðferðar Embættis landlæknis varðandi kvörtun vegna meintra mistaka við tannsmíðaþjónustu
Kærð var málsmeðferð Embættis landlæknis í kvörtunarmáli vegna meintra mistaka við tannsmíðaþjónustu og veittrar heilbrigðisþjónustu. Kærendur kvörtuðu undan vali embættisins á óháðum sérfræðingi og kröfðust þess að málið yrði tekið upp að nýju og nýir óháðir sérfræðingar sem samþykktir yrðu af málsaðilum yrðu fengnir til verksins. Ráðuneytið hafnaði kröfu kæranda.