29 október 2013Kærunefnd útboðsmála
Mál nr. 18/2013. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:
<br>Með bréfi 1. júlí 2013 kærði
Tengill ehf. ákvörðun, varnaraðila, Vegagerðarinnar um að vísa frá tilboði fyrirtækisins
í verkið „Múlagöng, endurbætur á rafkerfi 2013-2014“ og hefja samningaviðræður
við Rafmenn ehf. Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun varnaraðila um að
vísa tilboði kæranda frá verði felld úr gildi en til vara að nefndin láti uppi
álit á skaðabótaskyldu varnaraðila.