22 júní 1998Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
48/1998 Úrskurður frá 22. júní 1998 í málinu nr. A-48/1998
Kærð var synjun Tryggingastofnunar ríkisins um að veita upplýsingar um greiðslur stofnunarinnar til einstakra lyfjabúða og um innbyrðis stærðarhlutföll þeirra, á tilteknu tímabili. Gögn í skilningi upplýsingalaga. Samkeppni. Mikilvægir viðskiptahagsmunir fyrirtækja eða annarra lögaðila. Synjun staðfest.